sunnudagur, júlí 10, 2005
Gaman að vinna svona um helgar, en það er allavegana skárra þegar það er svona grútfúlt veður. Var að fá verkefnalistann minn í gær og ég held bara að hann spanni meira en hálft árið í fúll sving. Það er engin lognmolla hér......takk fyrir takk.
Annars var ég að panta mér ferð til Suður-afríku í gær......ferðaplanið er eftirfarandi
- Reykjavík - London 08.11.2005, eftir vinnu...tæpir 3 tímar
- London - Amsterdam 09.11.2005, eldsnemma...tæpir 2 tímar
- Amsterdam - Cape Town 09.11.2005, fyrir hádegi...12 tímar
- Cape Town - Amsterdam 01.12.2005, rétt eftir miðnætti...12 tímar
- Amsterdam - London 01.12.2005, fyrir hádegi...tæpir 2 tímar
- London - Reykjavík 04.12.2005, um kvöld...tæpir 3 tímar
.......og ferðafélagar eru eftirfarandi.: Biggi, Cris og Einar! góður hópur!
Júhú ég hlakka ekkert smá til........þetta verður geðveikt. Nú erum við bara að sörfa og skoða hvað við eigum að gera af okkur í suður-afríku. Safarí, tjöld, strönd, sól, hótel, matur, lyf, bólusettningar, malaría, vísa......mikið að hugsa um. En held að það verði ekki spennandi að vera í 12 tíma í flugvél......man þegar ég fór til Dómeníska lýðveldisins þá voru það rúmir 9 tímar frá London og mér var eiginlega ekki skemmt, sérstaklega ekki á bakaleiðinni.....marr var náttúrulega svo spenntur á útleið!
En jæja, nú þarf ég að fara að huga að vinnu......hætta aðeins að hugsa um þetta svona allavegana í bili :)
Rumpastrumpa alveg að missa sig í spenningnum!
0 Röfl ;)