mánudagur, júlí 11, 2005

Úfffff.....hvað það er gaman að vera til :)
......langar að hoppa og skoppa um allt og á alla!
Sennilega hafa æfingarnar mínar svona rosalega góð áhrif á mig og geðheilsu mína, enda er kellan búin að vera frekar dugleg bara. Búin að vera nammi, köku og brauðlaus í heila viku.......og mikið asskoti er erfitt að borða ekki brauð! ég var alveg búin að gleyma því.
Jæja Vespan mín kemur í kvöld.....og þannig að ég fer á morgun út í Eimskip og leysi hana út úr tollinum og læt skrá hana.....þannig að ég verð bara komin á le Vespos í vikunni.......
þyrfti nú kannski að hugsa eitthvað nafn á hana!!!!
Annars er hann Gunni minn alltaf svo huggulegur við mig, hann benti mér á að vera bara í svona galla á henni.....hugsa að ég mundi nú vekja einhverja lukku um götur borgarinnar í þessu "átfitti"

RumpaStrumpa hoppandi og skoppandi glöð

0 Röfl ;)
Comments: Sendu inn athugasemd

This page is powered by Blogger. Isn't yours?