þriðjudagur, júlí 12, 2005

Allt að gerast!
Jæja þá er ég búin að ná í farmbréfið niðrí Vöruhús Eimskips, búin að fá EC-CoC skjalið yfir vespuna og búin að skila þessu öllu inn til Umferðarstofu til forskráningar.
Þannig að þá er bara að bíða til morguns og vona að kallarnir á umferðastofu afgreiði mig eins fljótt og þeir geta þannig að ég geti farið að leysa vespuna mína úr tolli og farið með hana í skoðun. Þetta er ekkert smá vesen að gera þetta allt saman........marr bara á sífelldum þeytingi daginn út og daginn inn.
En ferlega hlakka ég til að fá vespos.......Tja en ætli það skipti einhverju máli að hafa aldrei sest á mótorhjól né önnur vélknúin ökutæki með tveimur hjólum!!!! Ætla rétt að vona ekki....því ég þarf að keyra hana frá sundahöfn í skoðun og ég nenni ekki að vera eins og algjör kúkalabbi meðan ég geri það! verð það nú samt örugglega.....alveg eitthvað svona týpist fyrir mig.
jæja back to work!
Hressandi að vera að vinna svona mikið eins og ég er búin að gera undanfarna daga :)

0 Röfl ;)
Comments: Sendu inn athugasemd

This page is powered by Blogger. Isn't yours?